Veitingar

Veitingasalurinn okkar er opinn öll kvöld milli 19-21. Í boði er ýmist hlaðborð eða matseðill, misjafnt eftir kvöldum. Upplýsingar um hvort er í boði hverju sinni má finna á facebook síðunni okkar.

Hlaðborð

Á hlaðborðinu má finna forrétti með súpu, graflax, pate, sjávarréttum, gröfnu folaldakjöti, viðeigandi sósum og heimabökuðu brauði.
Aðalréttirnir eru lambakjöt úr sveitinni eldað á hefðbundinn hátt, svínakjöt, lax í smjöri, og steiktur þorskur ásamt meðlæti; fersku og elduðu grænmeti, brauði, kartöflum og sósum.
Í eftirrétt má oftast nær finna skyr með berjasósu, heita rabarbaraköku og ostabakka.

Verð:
Tvíréttað (forréttur og aðalréttur): 7.400 á mann.
Þríréttað (með eftirréttum): 9.200,- á mann.

Vegan og grænmetisréttir eru einnig í boði, spyrjið kokkinn.

Matseðill

Forréttir
Súpa dagsins, með fersku brauði, spyrjið kokkinn: 1.800,-
Grafinn lax, úr landeldi Silfurstjörnunnar Þistilfirði, með ristuðu brauði og dillsósu: 3.300,-
Hreindýrapate, með brauði og púrtvínsbláberjasósu: 3.800,-
Reyktur silungur úr Svartárkoti Bárðardal, með rúgbrauði og ferskri jógúrtsósu: 3.500,-
Roastbeef með fimmkornabrauði með remúlaði, steiktum lauk og salati: 3.800,-

Aðalréttir
Lambakjöt úr nágrenninu, með kartöflum, bökuðu grænmeti og sósu: 5.800,-
Grilluð kjúklingabringa með kartöflum, bökuðu grænmeti og sósu: 4.900,-
Ofnbakaður lax úr landeldi Silfurstjörnunnar Þistilfirði með hrísgrjónum, kartöflum og fersku salati: 5.200,-
Salat með fetaosti, harðsoðnu eggi og grænmetissósu: 3.500,-
Grænmetisborgari með hrísgrjónum, kartöfluklöttum og fersku salati: 4.700,-

Eftirréttir
Skyr með volgri bláberjasósu: 1.550,-
Heimagerð kaka, spurðu þjóninn: 1.850,-

Auka sósur: Vegan Aioli / Vegan Majo / Vegan Chili Majo: 250,-

Kaffi og te fylgja öllum réttum.

Matsalurinn okkar er rúmgóður og snyrtilegur. Við leggjum áherslu á íslenskan heimilismat, íslenskt hráefni og aðferðir. Kokkarnir okkar eru með mikla þekkingu og áralanga reynslu af matreiðslu og framleiðslu á íslensku hráefni.

Við reynum eftir fremsta megni að fá hráefni úr héraði og erum stolt af því að kynna þá framleiðslu sem er unnin í næsta nágrenni. Allt grænmeti kemur frá Hveravöllum í Reykjahverfi. Reyktur silungur kemur frá Svartárkoti í Bárðardal, þar sem hann er unninn á gamla mátann. Annar fiskur og reyktur lax kemur frá Hnýfli á Akureyri. Allar kökur á desert hlaðborði eru bakaðar og útbúnar í eldhúsinu hjá okkur.